3.11.2011 | 14:32
Hryllingurinn
Ég hlustaði á spjall sem hljómaði svipað þessu á rás tvö að ég held fyrir 2 dögum.
Þau ræddu myndina The Exorcist,þessa gömlu frá 7o og eithvað,þessa sem hrærði rosalega í kirkjunar mönnum og fleira fólki,eðlilega.
Útvarpsþulurinn var með í þættinum hjá sér ungan mann sem er kvikmynda gagnrýnandi og hryllingsmynda aðdáandi.
Þeir hneyksluði sig á viðbrögðunum sem þessi mynd fékk á sínum tíma,og þá sérstaklega á viðbrögðum kirkjunar,meira segja gekk gagnrýnandinn svo langt að segja að þau væru óþörf þar sem jú"Guð" vann í endann,eða var það ekki.
Hann sagði að þessi mynd væri bara djók miðað við myndirnar í dag,unga fólkið í dag hlægi bara að þessu.
Það er svo sem ekki nema von(mín orð)þar sem hryllingsmyndir í dag eru orðnar það raunverulegar og ógeðslegar að það er ekkert sem ekki er sýnt,samanber myndir eins og "Saw,1 til 5" og fleiri myndir í dag þar sem fólk er étið lifandi og slátrað.
Það hljómaði þannig hjá gagnrýnandanum unga að þetta væri skref fram á við,við þyldum meira,hefðum meira þol fyrir viðbjóðnum.
Ég er búin að horfa á minn skerf af hryllingsmyndum,taldi mér trú um það í langan tíma að þær væru bara jákvæðar,en ég hef skift um skoðun og tel þetta slæm fræ til að sá í annars ofsalega upptekna heila ungs fólks sem flestra.
Ég kýs frekar 1970 og eithvað þegar einhver þorði að benda á vitleysuna en 2011 eithvað þar sem slik rödd væri eflaust talin til afskiftasemi og smásálarhugusunar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2011 | 18:47
greyið ungu strákarnir
Ég fór út í búð í morgun með Emilí að kaupa ýmislegt smálegt fyrir afmælið hennar.Ég rak augun í fyrirsögn á dagblaðið sem ég ákvað að kaupa og lesa.
Mér langar að vera með smá úrdrátt úr greininni sem prýddi forsíðuna.
Framan á blaðinu var andlitsmynd af þremur strákum Jóhann 20 ára,dennis 19 ára og Andreas 19 ára og fyrirsögnin var"Pyntuðu vin sinn til dauða"..
Ég las.
þessir þrír stráka héldu að vinur sinn Christian Larsson 26 ára hafði stolið af þeim 40 róandi töflum að andvirði kannski 40 til 60 þús íslenskar krónur.
7 september síðastliðin kemur Christian heim til Jóhanns,Christina sem stuttu áður hafði sagt við pabba sinn að hann væri hræddur um líf sitt og vildi flytja aftur þar sem hann hafði búið áður,það hins vegar fékk hann ekki að gera.
Þegar hann kemur inn til jóhann fara þeir að ásaka hann um að hafa stolið töflunum,ráðast á hann og misþyrma.Þeir pyntuðu vinn sinn í marga klukkustundir,lemja hann meðal annars með hamri,drekkja honum í ísköldu vatn,i enda síðan á því að stinga hann 30 sinnum í brjóstið og bakið.
Christian notar síðustu krafta sína til að verjast og þeir sameinsast um að henda honum í baðkarið þar sem þeir skera af honum hausinn!!!.
Þeir búta líkið niður og henda í stöðuvatn skammt frá.Eins og þetta sé ekki nógu viðbjóðslegt þá má geta þess að á meðan öllu þessu stóð þá tóku þeir þetta upp á video og sést á því hvar þeir hlæja á meðan þessu stendur og töluðum um að setja á Youtube.
Ýmindið ykkur nú hversu langan fangelsisdóm þeir fá?
10 til 12 ár,líklega ef þeir haga sér almennilega þá komast þeir út eftir 5 til 6 ár!!!!
Blaðamaðurinn tekur fram að dómarnir þykja harðir sérstakleg þegar tekið er tillit til ungs aldur sakborninga!!!!!!
Ungs aldur,ungs aldur.Glæpurinn er viðbjóðslegur,miskunarlaust morð á ungum manni og dómarnir sem þessir menn fá eru annar glæpur.
Þetta allt vekur upp margar spurningar og ein þeirra er af hverju eru fangelsidómar svona lágir hjá okkur?
Ég er ekki orðlaus en hryggur yfir svona sorglegum atburði,það er satt sem þeir segja að raunveruleikin er ljótari en ljótustu bíómyndirnar.
Þessi grein var valin sérstaklega til að vera framan á blaðinu því að þá selja þeir meira af blaðinu,merkilegt ekki satt.
En inn í blaðinu var önnur grein sem fjallaði um fyrrum gleðikonu sem kynntist Jesú,frelsaðist og hefur eytt miklu af sínum tíma síðastliðin 15 ár í að hjálpa konum sem selja sig,það hins vegar var ekki framan á blaðinu vegna þess að þá hefði engin keyft það nema kannski ég;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2011 | 13:52
áramót
Ég keyrði fram hjá Vogi á nýársnótt og bað fyrir öllum sem þar eru yfir hátíðirnar,bað að þau myndu eiga bjarta framtíð fyrir sér,frjáls undan öllum þeim fíknum sem vilja þau drepa.
Ég átti stórkostleg áramót,þau snerust ekki um mig!!!
Heldur börnin mín og börn systkina minna.Við vorum heima hjá mömmu og Valla við drekkhlaðið hátíðarborð.
Ég strengi engin áramóta heit en planið er stórt fyrir árið 2011,flytja heim frá svíþjóð og stefni ótrauður á að fara í stýrimannaskólann.
Fyrir marga eru áramótin tími til að staldra við,líta yfir farin veg og ráðgera næstu misseri,en ekki hjá mér.2 jan er dagurinn minn,dagurinn sem ég minnist hvernig 2 jan 2006 var,seinasti dagurinn sem ég drakk eða notaði vímuefni!´
Þá lít ég til baka og sé hvað hefur áunnist,hvar ég sé staddur,hvernig mér líður og þakka Guði fyrir að hafa fengið nýtt tækifæri.
Ég ætla ekki að vera með dramtískan pistil hér í dag,en ég veit að það eru margir sem eru gegnum sósaðir af áfengi og fíkniefnum eftir "hátíðarnar"og hugsa að þetta sé árið sem eithvað muni breytast,að það séu margir sem segjast búnir að fá nóg af þessu djammi og innihaldslausa lífi,voru jafnvel á trúnó í nótt við einhvern sem þau héldu að væru vinur sinn,bæði höfðu sagt það sama en að líkindum hittast á næsta djammi um miðjan Janúar og þykjast ekkert muna eða bara hlægja saman í kaldhæðni og vonleysi.
En svo er það nú bara þannig að samfélagið sem við búum í samþykkir mikla neyslu áfengis eins og það sé menning og fyrir vikið voru örruglega nokkur hundruð börn sem upplifðu foreldra sína í nótt sem kjánalega og skrítna í besta falli,en aðrir sem kolruglaða og líta öðrum augum á þau í dag.
Flestir hafa það eins og þeir vilja!!!
Ég ætla taka því rólega í dag enda búin að vera stremmbin tími hjá mér og konunni minni.Við eigum saman fimm börn og erum nú í raun í utanlandsferð og vegna fjölda þá pössum við ekki á einn stað og þurfum að betla um bíl að láni og stundum 2 bíla;) takk elsku fjölskylda fyrir allt!
Ég fer (heim)eftir 7 daga,en hlakka mjög mikið til að koma aftur til Ísland í vor,(home,where everybody knows your name, and they are always glad you came,you wanna be where everybody knows your name)(sönglaðu lagið úr staupasteini við).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2010 | 13:33
góð viðhorf og hvernig þú getur stolið þeim
Af einhverjum undarlegum ástæðum þá hef ég ekki getað notað þessa blogg síðu heiman frá mér í Svíþjóð síðastliðið hálft ár,en fyrst ég er hérna heima um jólin þá ætla ég að skrifa hér nokkrar línur.
Ég eyði part af aðfangadag á vakt hjá rauða krossinum,eithvað sem ég gerði mikið af áður en ég flutti út,bæði sem sjálfboðaliði og líka á fullum launum.
Ég vissi að þegar ég byrjaði hér að ég myndi læra mikið á því og það er rétt.
Ég lærði meðal annars að eitt það besta sem þú getur haft í þessu lífi eru góð viðhorf.Ég bað Guð oft um visku,þolinmæði,kærleik,samúð, og fleiri góðar dyggðir og auðvitað kærleikurinn þar efstur á blaði en strax á eftir góð viðhorf,ég vil frekar vita minna og elska meira en vera stúttfullur af viti en kaldur sem klettur,ekki að það sé eithvað samasem merki þar á milli;).
Og það besta við viðhorf er að þau eru eithvað sem þú getur bara tekið og gert að þínum!,ég til dæmis þegar ég hitti manneskju eða les um hana/hann sem hefur góð viðhorf þá reyni ég bara að copy,pasta þau og gera að mínum sem gengur yfirleitt strax.
Ég hef fengið að þá gjöf að fá að hlusta á fullt af fólki segja mér frá vandamálum sínum stórum sem smáum og stærsti munurinn var sá hvernig þau tóku á þeim.
Hvernig þú tekur á vandamálunum snýst allt um viðhorf,hversu lengi ertu í sorg eða hversu lengi liggur þú niðri eftir högg sem sló þig niður?geturðu notað það neikvæða til góðs,sérðu ljósið í myrkrinu eða er myrkrið þar sem þú vilt vera?
Það gleður mig að segja frá því að ég var einu sinni stúttfullur af lélegum viðhorfum,af hverju gleður það mig? jú til að sanna að engin þarf að vera þannig frekar en hann vill og ég get ekki hrósað mér af neinu góðu í mínu lífi,nei,það er allt Guði að þakka.
Ég var einu sinni í myrkrinu og fann ekki leiðina heim, helsta hindrunin var ég sjálfur,sjálfselska mín átti sér engin takmörk.
Ég er í dag frjáls maður,trúi á Krist,er engu háður og finn vindinn í andlitið sem vakandi maður en ekki dofin af neyslu hugbreytandi efna.
Eftir að hafa leitað í innantómu trúarbrögðum eins og búddisma,yoga og ógrynni af sjálfshjálpar bókum þá kynntist ég Jesú hinum eina sanna Guði og lífið hættir ekki að vaxa upp á við;)
Ég bað Guð líka mjög mikið um auðmýkt og ég hef fengið hana þó alltaf megi vera meira af henni en án hennar lærum við ekki neitt,.Ég sagði við hann"gef mér auðmýkt svo ég megi læra meir,og að ég geti lært af hverjum sem er,að ég aldrei verði of stoltur né hrokafullur til að taka á móti nýjum lærdómi og að jafnvel þó að flytjandi boðskapsins sé kannski ekki mér að skapi þá samt verði ég opin fyrir því sem hann segir" einhvern vegin svona hljómaði það og það virkar.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra,ég verð bara væmnari ef ég held áfram,en ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þetta verði jól án áfengis hjá öllum,ég óska ykkur nægjusemi og lítillæti og minni á að það er aldrei neitt að gjöfinni heldur einungis rangar væntingar;)
Eftir áramót eða 2 janúar eru 5 ár liðin síðan ég hætti að drekka og síðan þá hef ég sigrast á risum í mínu lífi,ég er "alltaf"tilbúin að ræða við hvern sem er og hvenar sem er um leiðina sem ég fór ef það gæti mögulega hjálpað!,.Guð blessi ykkur öll
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2010 | 11:57
Takk fyrir Emilí míu
Hvað get ég sagt,ég er að springa úr hamingju,dóttir mín 2 daga gömul liggur inn í rúmi hjá mömmu sinni vær og kær og ég sit inn í eldhúsi í og hugsa um hve blessaður ég er.Ég hugsa heim til Íslands,til drengjanna minna tveggja sem bráðum koma til mín og til fósturbarna minna tveggja sem hjá feðrum sínum nú dvelja,um fjölskylduna mína sem ég er svo stoltur af,pabba,fósturpabba, mömmu, tengdamömmu og allra hinna..;)
Líf mitt er stórkostlegt,ég hef verið blessaður á þúsund vegu og mér langar að skrifa um það,vá mér langar bara að hrópa það af hæsta hól"Halló ég heiti Jói og ég hef verið blessaður á fleiri vegu en ég gæti dreymt um,ég átti ekki neitt en nú á ég allt,vittu til að allt þetta og meira til stendur þér lika til boða,ef þú ert þarna úti og þú átt ekki neitt,ert kannski einmanna og finnst lífið erftitt,þá er ég hér til að segja þér að allt getur breyst til hins betra,ég er lifandi sönnun þess.halelúja og Amen.
Sagði hann halelúja og Amen? já það er rétt ég trúi á Jesú frelsara minn og ég treysti honum fyrir lífi mínu og tala við á hverjum degi.Ef þú þekktir mig áður og þekkir mig í dag þá hlýtur þú að spyrja þig hvað hafi gerst og hverjum ég fylgi?
Ég þakka Guði fyrir líf mitt í dag og mér langar að segja ykkur aðeins frá uppáhalds versi mínu úr biblíunni sem hljómar svo"þannig lýsi ljós þitt meðal manna að þeir sjá góð verk yðar og vegsami föður yðar sem er á himnum"Amen matt 5:16..Fyrir mig táknar þetta að ég eigi að vanda mig við að lifa og að líf mitt eigi að vera lifandi vitnisburður um hversu stórkostlegur Guð er.
Ég vil elska eins og Guð,án skilyrða og ég bið hann í dag að gefa mér allar þá dyggðir sem sæma góða foreldra og ég þakka honum fyrir það traust sem hann sýnir mér,ég vil ala upp börnin mín á besta vegu,kenna þeim góða siði og góð viðhorf,ég óska þess að þau treysti mér og að þau segi mér drauma sína svo að kannski geti ég hjálpað þeim að láta þá rætast....
Mér langar að enda þessi skrif á parti af sálm 62 vers 6 til 8 "Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld því að frá honum kemur von mín.Hann einn er klettur minn og hjálpræði,vígi mitt,mér skrikar ekki fótur.Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd,minn örugga klett og athvarf hef í Guði.Amen ,kveðja frá Svíþjóð;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2010 | 10:50
Takk fyrir fjölskylduna;)
Ég sem gat ekki hugsað um einn, á nú fjölskyldu sem telur 6 næstum sjö.
Ég sem einu sinni kafnaði næstum úr sjálfselsku, í dag glaður þjóna fleirum en sjálfum mér.
Ég sem einu sinni gat ekki stöðvað löngunina í meir, og meir eitur-brennivín og langaði ekki einu sinni til,
er í dag sem maður með annars manns minningar.
Ég sem einu sinni allt og alla fótum tróð,stíg létt til jarðar vil, engan skaða menn dýr eða blóm.
Ég sem lít björtum augum fram á veginn veit að lífið er alltaf upp á við.
Ég sem sái miklu svo að uppskera verður ríkuleg, finn hvernig hjartað stækkar og heimurinn með,
Hvernig komst ég þaðan og hingað? ég skal segja þér,en fyrst segðu þú mér ,trúir þú á Guð?
Þetta sem fyrir ofan stendur á ekki að vera vísa,spakmæli eða eithvað ákveðið er bara setningar sem komu til mín á föstudaginn þegar ég var að keyra út á Arlanda að sækja strákanna mína úr flugi frá Íslandi og ég var að hugsa um þá og lífið sem ég á,og þetta kom til mín nokkurn veginn jafn hratt og það er fyrir þig að lesa það og ég ákvað að lítið breyta því.
Guð er góður og hann hefur svo sannarlega sýnt mér það.Heimilið mitt logar af lífi og ég elska það.Fjórir krakkar og eitt á leiðinni í júní,stórkostleg eiginkona og fjölskylda.
Ég tala oft við Guð um það sem ég vill og sérstaklega fyrir það sem hann hefur gefið mér og líka um viðhorfin sem ég vil fá og vil tileinka mér,ég veit nefnilega sem er að það eru viðhorfin sem skapa hamingju þína að miklu leyti og ég elska það þegar ég hitti eða les um fólk sem eru með sterk viðhorf,þá reyni ég að sjúga þau í mig.Það er alveg hægt að vera prins í ævintýralandi með allt sem hugurinn þráir en samt vera óhamingjusamur og leiður.
Ég veit líka að ég er skapaður með frjálsan vilja(hversu gaman hefði það verið ef að Guð hefði skipað okkur að tilbiðja sig?ekki spennandi)og að þótt ég losni við bresti og léleg viðhorf þá get ég alltaf náð í draslið aftur.Ég verð því að vera á varðbergi alla mína ævi fyrir sjálfselsku og eigingirni og hvað er betra við því en að eiga stóra fjölskyldu;) mér líður aldrei illa þegar ég er að hugsa um aðra en þegar ég er að hugsa um sjálfan mig þá hættir mér til að líða illa.
Ekkert í blogginu mínu núna eða áður á að hljóma sem ég sé einhver lífssnillingur heldur er þetta meira þrá mínir og draumar og það sem ég stefni að,ekki miskilja mig.
Ég vil vanda mig við að lifa og að lifa með Jesú alla mína ævi,það er hann sem kom inn í líf mitt og breytti mér þótt hann elskaði mig eins og ég var,ég er alltaf að læra meira af honum og ég óska þess að þú fáir að kynnast honum.
Eitt af því sem ég bið Drottinn um er viska,viska er að mínu mati ekki upplýsingar eingöngu heldur það að vita,geta og vilja.Og sú viska er ekki sama viska og kom Íslandi á þann stað sem það er í dag heldur lífsins viska sem er ofar annari visku Amen.
Það væri klassíkst að skrifa hér einhverja fleyga visku setningu upp úr biblíunni sem flott væri að setja á Facebook en ég ætla sleppa því,flettu því bara upp í Biblíunni þinni;)(orðskviðirnir 27:1)
Ég kveð frá Svíþjóð og óska ykkur öllum góðs dags.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2010 | 19:47
Discern of spirits!
Þegar pastor Ulv Ekman var spurður af því hvað væri eitt af því mikilvægasta fyrir kristna manneskju að hafa þá svaraði hann"(á ensku"discern of spirits"sem þýðir líklegast á Íslensku að geta skilgreint andann.Það eru þrjár tegundir anda sem á Jörðinni eru:Andi Guðs,Andi heimsins og svo andi djöfulsins.Pastor Ulv Ekman er leiðtogi skólans sem ég er í og ber ég mikla virðingu fyrir honum jafnt sem hinum Pastorunum í þessum frábæra skóla.
Mér finnst þetta mögnuð pæling og ég hef verið að hugsa þetta mikið upp á síðkastið.Ég heyrði það líka einu sinni sagt að ef þú heyrir inn í þér rödd sem segir að þú sért einhvern veginn svona eða hinsegin þá sé það ekki góður andi og mér verður spurn hver það er sem segir við grönnu fallegu stúlkuna sem horfir í spegilinn og mælir á sér fituna að hún sé feit og ljót eða massaði srákurinn sem finnst hann vera minnka eftir að hafa misst af einum degi í ræktinni,þessari rödd sem segir þig vanta hitt og þetta.
Ég var um daginn að hugsa um hugmynd sem ég er að gæla við að framkvæma.Sat þarna og lét hugann reika um hvernig allt ætti að vera þegar skyndilega hljómaði eina og svona"Iss piss,það er pottþétt einhver búin að gera þetta áður og miklu betur en þú gætir"og í svona splitt sekúndu dróst úr mér kjarkur eða þar til að ég mundi þetta"discern of spirits" og ég vissi að þetta væri ekki frá Guði heldur úr hinni áttinni,ég brosti af þessu og hélt áfram að skipuleggja.
Ég er svo glaður að vita þetta því að vita er sigur.
Viska kemur ekki úr Google heldur frá heilögum anda,þann sem Jesú gaf okkur þegar hann fór frá Jörðinni.
Síðan var það nú í vikunni að mér leið eins og ég væri ofsalega ófullnægður,ég vildi endalaust sætindi,horfa á dvd á hverju kvöldi og að ég gæti ekki fengið nóg af neinu þar til að ég spurði heilagan anda hvað væri málið og svarið kom um leið"Fastaðu á allt sem reynir að ná yfirtökum í lífi þínu og þannig nærðu aftur stjórn á því og upplifir nægjusemi og ró í hjarta"Amen og takk fyrir,og tilfinningin um ófullnægjuna hvarf alveg um leið.,
Ég kýs að vanda mig við að lifa og ég vil lifa öðurvísi lífi,lífi sem snýst ekki bara um sjálfan mig um mig, frá mér og til mín heldur um aðra,fjölskyldu,vini og bara allan heiminn.
Allar góðar hugmyndir eru frá Guði og ég vona að þú sjáir að ef það er eithvað sem er að halda þér niðri í lífinu að það er blekking og að þið vitið að þið eruð sköpuð til að vera sigurvegarar á þessari jörð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2010 | 13:55
eins og upp úr dagbókinni minni
Ég vil vegsama Drottin alla tíma,ætíð sé lof hans mér í munni.
Ég hrósa mér af Drottni,hinir snauðu skulu heyra það og fagna.
Vegsamið Drotttin ásamt mér,tignum nafn hans einum hug,
Ég leitaði Drottins og hann svaraði mér,frelsaði mig frá öllu sem ég hræddist,
Lítið upp til hans og ljómið af gleði,þá munuð þér aldrei roðna af skömm.
Hér er vesæll maður sem hrópaði og Drottin bænheyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hana.
Engill Drottins,setur vörð kringum þá sem óttast hann og frelsar þá.
Finnið og sjáið að Drottinn er góður,sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum.
Óttist Drottinn,þér hans heilögu,því að þeir sem óttast hann líða engan skort.
Ljón búa við skort og svelta en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis,Halelúja og Amen.
Þetta er fyrsti parturinn af sálmi 34 úr Biblíunni og það merkilega er að hann gæti þess vegna verið beint upp úr dagbókinni minni.Allt þetta og miklu meira hef ég fengið síðan ég kynntist Drottni okkar Jesú krist og það er þess vegna sem ég blogga um það.Ég er svo endalaust glaður með nýja lífið mitt og ég veit hve máttur Guðs er mikil og ég finn til samúðar með öllum þeim sem eru þarna úti og þrá frelsið eins og ég gerði.
Ég er búin að upplifa svo gríðarlega margt síðustu ár sem ég hef gengið með Jesú og með því að tala um hann og skrifa er ég svo sannarlega að reyna að hafa áhrif á þig og ég vona að þú íhugir alvarlega að ganga líka með honum.
Jesús sagði"Ég er vegurinn,sannleikurinn og lífið.Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig"jóh 14:6.
Hafðu þann sannleik í lífi þínu en ekki eithvað sem einhver hefur sagt þér og er að halda aftur af þér á einhvern hátt,sama hvað það er í lífi þínu sem virðist erfitt þá er hægt að leysa það með hjálp Drottins,trúðu mér,ég er gangandi dæmi dramatískan viðsnúning á lífi.Eitt skref í einu með auðmýkt til þess að læra og breyta og lífið brátt verður betra .
Ég elska Laugardaga,mér finnst alltaf eins og þeir séu einni mínútu lengri en aðrir dagar.Ég ætla fara á fund,vinna heima hjá mér,læra,knúsa konuna mína og leika við fósturbörn,borða bollur,fara í ræktina,horfa á dvd,borða góðan kvöldmat,og vonandi sjá strákana mína á skype,takk Guð fyrir skype,fjölskylduna mína,heilsuna,skólann,heimilið mitt,matinn í frystinum og takk fyrir orðið þitt sem ég elska að nærast á,eigið þið öll góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2010 | 13:46
daglegt brauð
Vá hversu tímin liður hratt,mér finnst eins og Jólin séu nýliðin en nú er febrúar á fleygiferð.Það er bæði gott og slæmt,slæmt að það sé svo stutt eftir að skólanum en gott að veturinn fari nú bráðum að víkja og frábært að með páskum koma strákarnir mínir í heimsókn og verður þá slegið upp veislu og feita kálfinum slátrað.
Það er hins vegar alltaf svo mikið að gera hjá mér og lífið svo skemtilegt að það er ekki skrýtið að mér finnist það líða hratt.Daglegur bisness hjá mér er að vakna klukkan 5 40,sturta mig og tannbursta,rakspíra og næs.Borða síðan eithvað hollt og á meðan les ég smá í Biblíunni eða skoða vísir .is til að sjá hvað er frétta af elsku landinum mínu.Legg síðan af stað til Uppsala klukkan 6 30 með fullan brúsa af tei og ipodinn fullann af músík.
Ég er einn klukkutíma og 15 mín að keyra í skólann sem getur verið ótrúlega þreytandi sérstaklega þar sem ég er einn.Ég nota tímann oft til að biðja fyrir öllum sem ég þekki og að eiga tíma með Guði,síðan hlusta ég á tónlist sem ég er með á Ipodinum.Skólinn er frá 8 til næstum 12 og byrjar á lofgjörð og bænastund í stóra salnum sem rúmar 5000 þúsund manns og stundum eru það margir í kirkjunni.
Ég er í International bekknum sem telur 40 eithvað manns frá öllum hornum heimsins.Skólinn er stórkostlegur og miklu meira en ég hélt,mæli sterklega með honum við alla þá sem hafa áhuga,.
Klukkan 12 bruna ég heim til elsku konu minnar sem er tilbúin með frábæran mat handa mér þegar ég kem heim klukkan rúmlega eitt,og við eyðum smá tíma saman ég,hún og fósturdóttir mín áður en ég fer að vinna hjá mági mínum.
Þegar ég kem heim upp úr fjögur er það venjulegt heimilislíf plús það að í vetur er ég búin að vera gera upp íbúðina sem við búum í og er ég búin að eyða löngum tíma í það,síðan læri ég og eyði tíma með fósturbörnunum mínum og elskulegri eiginkonu minni sem er ólétt.
Líf mitt er risastórt og ég elska það og elska hversu mikin styrk ég hef og þakka ég Guði fyrir það,hann er í fyrsta sæti hjá okkur.
Ég fer líka að lyfta nokkrum sinnum í viku en ég reyni ekki að vera lengur en 50 mín í einu því að ég vil ekki taka of langan tíma frá fjölskyldunni minni.Ég trúi að jafnvægi í lífinu sé mikilvægt og ég sé það oft fyrir mér eins og það sé ósýnilegur tónjafnari sem allir þættir lífsins eru á,samanber allt það sem mestu skiftir,Guð,fjölskyldan,vinir,vinna,áhugamál,heilsa,matur og bara allt og kannski ekki í þessari röð nákvæmlega en auðvitað Guð og fjölskyldan í 1 sæti.Það þarf að huga að heilsunni en ef ég myndi eyða of löngum tíma í ræktinni þá tek ég tíma frá einhverju öðru eins og kannski að lesa Biblíunna(of massaður gaur með tómarúm í hjarta)nei ég segi svona en samt þá meina ég dálítið,eins og að við þurfum að borða þá þurfum líka á andlegri næringu að halda og mæli ég sterklega með Biblíunni því að hún er orð Guðs til okkar og það er til lítils að vera með risabicep ef að hinn innri maður er eins og lauf í vindi.Ég hef verið sterkari að utan en innan en í dag get ég fullum fetum sagt að ég er mikið sterkari að innan þökk sé Guði og samt er ég mjög sterkur líkamlega;)HALELÚJA
Það hefur verið sagt að ef þú sýnir mér 5 bestu vini þína þá geti ég sagt mikið um þig og ég segi líka að ef þú sýnir mér bankabókina þína þá geti ég sagt þér hver eru þín hugðarefni .
Ég reyni að vanda mig við að lifa og er búin að gera það í rúmlega 4 ár,í 4 ár er ég búin að búa til góðar minningar og sá í akur framtíðinnar með því að gera mitt besta á hverjum degi,og eitt af trikkunum við að sá í akurinn er að vera ekki stöðugt að krafla í moldinni og skemma uppskeruna heldur treysta Guði og horfa fram á veginn.
Bloggið mitt er aðalega um Guð og lífið enda er hjarta mitt fullt af honum,enda er sagt í Biblíunni að "af gnægð hjartans mælir munnurinn"Amen
Það er Sunnudagur og á Sunnudögum fer ég í Kirkju með fjölskylduna,ég geri það að vana enda er lífið einn stór vani,ef þú ert með slæma vana þá getur Jesú hjálpað að brjóta þá og búa til nýja,believe it and receive it Amen og kveðja til ykkar allra og sérstakleg þeirra sem enn eru ekki farnir að sofa grátandi yfir mistökum næturinnar með móral yfir öllu því heimskulega sem þau sögðu og gerðu og öllum peningunum sem þau sóuðu í allskyns drykki og efni sem öllu áttu að bjarga og öllu áttu að breyta en aldrei virkuðu nema örskamma stund,þið eigið alla mína samúð,ég þekki það enda var ég þar í drykklanga stund eða rúmlega það ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2010 | 09:39
Efastu um efann þinn
Mér langar að deila því með ykkur hvaða orð ég fékk frá Guði þegar á mig sótti andartaksefi um hvað ég væri að gera í lífinu í dag og hver væri stefnan.Ég hafði verið að velta mér upp úr áhyggjum af hinu og þessu í jólafríinu heima á Íslandi og ískaldur efinn læddi klónum sínum utan um mig og dró úr mér kjark.
Ég var farin að telja mér trú um að ég ætti bara að hætta í skólanum og fara berjast við lífið þar sem það væri,efinn stækkaði í huga mínum en ekki hjarta sem skapaði mikla togstreitu.Ég var að rifna í sundur er ég bað Guð um orð,"Segðu mér Drottinn hvað ég á að gera?"spurði ég og fékk þetta hérna úr bókinni um Job.kafli 5 vers 17-27
Sæll er sá sem Guð leiðbeinir,sá sem hafnar ekki ögun Hins almáttuga,
Því hann særir en bindur um,hann slær en hendur hans græða.
Úr sex nauðum hann bjargar þér,í þeirri sjöundu snertir þig ekkert illt.
Í hallæri bjargar hann þér frá dauða og frá mætti sverðsins í stríði.
Þú verður varin fyrir svipu tungunnar,og þarft ekkert að óttast þegar eyðingin kemur,
þú getur hlegið að eyðingu og hungri og villidýrin þarftu ekki að óttast.
Þú ert í bandalagi við steinana á sléttunni og dýr merkurinnar eru þér vinveitt.
þú verður þess vís að tjald þitt er óhult og skoðir þú bústað þinn sérðu að ekkert skortir.
þú kemst að raun um aða niðjar þínir eru margir,afkvæmi þín sem gras á grundu,
þú nýtur heilsu þar til þú verður grafinn,líkt og kornknippi sem sótt er á réttum tíma.
Þetta höfum vér hugleitt,þannig er það,vér höfum hlustað,HAFÐU ÞAÐ HUGFAST!
Vá og Amen,það er ekki hægt að fá sterkar orð og þegar ég las seinustu línuna lá við að ég skammaðist mín fyrir að hafa misst trú og leyft efanum að stjórna mér um hríð .
Ég mun klára biblíuskólann í vor og ég mun leyfa Guði að móta mig alveg eins og hann vill.
Ég veit ekki hvað nánasta framtíð ber í skauti sér en ég veit að ég ætla elta Jesú og treysta honum fyrir öllu,hingað til hefur uppskeran verið hundraðföld,Drottinn dekrar mig og elskar mig eins og ég er og elskar mig nógu mikið til að breyta mér:)
Og um efann er gott sem ég heyrði einu sinni einhvers staðar"efastu ekki um trú þína,efastu um efann þinn" mér finnst þetta nokkuð gott.
Kær kveðja til Íslands,landsins sem ég elska svo mikið og allra ættingja og vina;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


baldurkr
baldvinj
gustichef
ma
freyrholm
tilveran-i-esb
sveiflan
islandsfengur
krist
morgunbladid
postdoc